Rauðkál

2 msk smjör
800 gr rauðkál, fínskorið
6 stk einiber, mulin – fást þurrkuð í svona kryddstaukum
3 msk hunang
10 sveskjur, skornar í tvennt
2 perur, afhýddar og skornar í bita
2 dl rauðvín
Salt og pipar eftir smekk

Smjörið hitað í potti og rauðkáli, einiberjum, hunangi og sveskjum bætt út í. Þetta látið malla í nokkrar mínútur.
Perum blandað út í og hitinn lækkaður. Látið malla í 20 mín og hrært í reglulega.
Rauðvíni hrært út í og soðið þar til það er að mestu soðið niður í kálið (e.t.v. um 30-50 mínútur). Bragðbætt með salti og pipar, Ekki sakar að setja rifsberjahlaup út í í lokin.