Tónleikar á Austurlandi

Kirkju- og menningarmiðstöðin á Eskifirði

Í stofunni heima
Von, gleði, lofgjörð og þakklæti

Negrasálmar

Mánudaginn 20. júlí kl. 20:30 flytja Haukur Ágústsson og Daníel Þorsteinsson negrasálma í kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Meðal laga eru Swing low, Go down Moses,  Amazing Graze og Sometimes I feel like a motherless Child.

Um negrasálmana sagði sr. Svavar A. Jónsson eftir afar vel sótta og vel heppnaða tónleika þeirra félaga á nýliðinni kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju:  “Negrasálmarnir miðla okkur von, gleði, lofgjörð og þakklæti og það eru góðir byggingarsteinar þess nýja Íslands, sem fyrir liggur að reisa.”

Miðaverð 1000 krónur en 500 fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja.

Amazing Grace. bútur