Venjulegur mánudagur

Í gær var mánudagur og nóg í boði. Við systur fórum á málstofu um kreppuræfilinn hjá Akureyrarstofu. Ég fór sérstaklega til að hlustaa á Sigrúnu Davíðsdóttur, sem ég held mikið upp á. Málstofan var vel sótt og skemmtileg, þrátt fyrir umræðuefnið. Þá fórum við í bíó og sáum mynd, sem verið er að sýna á franskri bíóviku. Ég var orðin mjög þreytt og hefði átt að fara heim að sofa, en lifði þetta þó af. Ekkert var úr því að fara á óskalagatónleika Eyþórs Inga, sem voru í kirkjunni kl. 8. Ég fór beint að sofa. Getur nokkur sagt, að hér sé ekki nóg í boði á menningarsviðinu?

Trackback URL

Comments are closed.