Nóg um að vera

Já, ég hef fengið mikið af athugasemdum vegna þess h vað ég hef verið löt að skrifa í dagbókina mína. Það er svo sannarlega ekki vegna þess að ekkiert gerist, síður en svo. Leiksýningar hér og þar, kvikmyndasýningar, spjall og spil bæði heima og heiman. Það var nú dálítið óvænt og skemmtilegt, að síðasta mótið í f yrra á Bjargi (fél. aldraðra) endaði með því að við Helen vorum í 3-4 sæti. Hvernig gat það nú skeð? Nú Reykjavíkurferð, var ég kannski búin að nefna hana?
Þetta hefur verið góður tími með góðu fólki. Ekki má gleyma PAN og hinni frábæru stjórn, en stjórnarfundir eru hreint eins og vítamínsprauta. Kirkjuferðirnar eru líka fastur punktur í okkar tilvieru og svo er það staldrið á föstudögum. Þetta er nú svo yfirlit yfir eitthvað af því, sem hefur verið að gerast nýverið. Gaman, gaman.. Og svo eru það litlu sonardæturnar og foreldrar þeirra sem veita okkur margar unaðsstundir. Bryndís er reyndar í snjónum í Svíþjóð með mömmu sinni, en Ragnhildur kemur hér nær daglegae með föður sínum. Við hlökkum til þess að fá Evu Hlín og Bryndísi heim á ný. Eitthvað hefur trúlega orðið útundan, en þetta er nóg samt.

Trackback URL

Comments are closed.