Þessi helgi hófst á föstudaginn. Þá voru lok jóla hjá okkkur í þessu húsi. Ég bauð 15 manns í brús. Sumir kunnu mikið, aðrir lítið og enn aðrir ekki neitt. En það kom ekki að sök því eini karllmaðurinn fór yfir reglurnar með okkur og létti okkur lífið. Að vanda var mikið talað og hlegið. Spilað var á 4 borðum.
Á laugardeginum fór ég í Amtið með Ellu og Láru og hlustaði á mjög áhugaverðan fyrirlestur Kristins Arnþórssonar, Ævi í ull. Sallurinn var troðfullur.
Á sunnudeginum byrjaði dagurinn með bókmenntamessu, þar sem biskupinn predikaði út frá bókinni Dóttir myndasmiðsins. Við gátum ekki tekið þátt í umræðum á eftir þar sem leið lá í hádegisverðarafmælisboð með góðu fólki. Þaðan fór ég beint í annað boð með stöllum mínum í bókaklúbbnum. Kominn var kvöldmatartíjmi þegar ég kom heim lúin og ánægð. Kvöldið notaði ég til að hringja nokkur símtöl, en náði ekki í alla.
Comments are closed.