Gleðileg jól

Kæru ættingjar og vinir nær og fjær og aðrir, sem lesa þessa færslu. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og alls hins besta á nýju ári. Þá þakka ég þeim, sem hafa gert sitt til að árið 2009 hefur verið hið ánægjulegasta þrátt f yrir allt krepputalið. Ég var alin upp á krepputímum og verð að segja það, að flestir, sem slá um sig með krepputali vita lítið hvað raunverulega kreppa er. Ég bið f yrir þeim, sem líður illa og eiga bágt, og geri mér grein fyrir því að þeim hefur fjölgað, en vissulega voru þeir einnig til í góðærinu og l´litið var gert til að hjálpa þeim þá, þegar það hefði átt að vera svo auðvelt. Talað var um fjölda barna, sem lifðu undir fátækramörkum og menn stundu og klöppuu á ýstruna. En þetta var nú önnur hlið, en ég byrjaði á. Ég endurtek því jólaóskirnar og bið ykkur vel að lifa.

Trackback URL

Comments are closed.