Á morgun en dagur íslenskrar tungu. Hvaða “Megas” ætli fái verðlaun að þessu sinni? Menntamálaráðherra verður hér, svo væntanlega fær þau einhver Norðlendingur. Ég ætla ekki að spá neinu um það.
Tómas Guðmundsson orti:
Mín fyrstu leikföng voru íslensk orð
og engin leikföng gátu reynst mér betur.
Á bls. 106 í “Undir kalstjörnu” segir Sigurður A. Magnússon:
Sigló, sigla, segl – öll þessi orð sem eru sky ld og tend með dularfullulm hætti og samt eru þau ekki það sama og hlutirnir, sem þeir tákna. Þetta hérna er dívan, sem ég þreifa á með hendinni, en þegar ég segi dívan, þá felur orið í sér bæði þennan dívan og alla aðra dívana.”
Þetta er bara sýnishorn og full ástæða fyrir þig að ná þér í bókina og lesa meira. Til hamingju með dag íslenskrar tungu á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóv.
Comments are closed.