Þeir eru fáir dagarnir sem ekki færa manni eitthvað óvænt. Á föstudagskvöldið var fundur í leshópnum. Bókin, sem við lásum var Undir kalstjörnu eftir Sigurð A. Magnússon. Frábær bók og hefur margt að segja nútíimamanninum, sem vorkennir sér að þurfa að upplifa kreppuástand í þjóðfélaginu. Svo er hún gósenland fyrir íslenskukennara og alla sem unna góðu máli. Ég skora á þig að lesa bókina. Hún kom fyrst út á áttunda áratugnum og svo aftur á þeim níunda. Líklega væri góð hugmynd að gefa hana út núna – ekki síður en Ísfólkið, sem er auglýst í hverjum mánuði. Ég segi nú ekki margt. Engin bók hefur verið jafn mikið rædd á fundi í klúbbnum eins og þessi bók.
Comments are closed.