I dag er vígsluafmæli Akureyrarkirkju, en hún var vígð í miðri heimsstyrjöldinni 17. nóvember 1940. Þó ég geti ekki sagt að mér finnist hún fallegasta kirkja landsins, þá er hún a.m.k. best staðsetta kirkja landsins, og mér þyrkir vænt um hana.
Archive > November 2009
“Mín fyrstu leikföng voru íslensk orð”
Á morgun en dagur íslenskrar tungu. Hvaða “Megas” ætli fái verðlaun að þessu sinni? Menntamálaráðherra verður hér, svo væntanlega fær þau einhver Norðlendingur. Ég ætla ekki að spá neinu um það. Tómas Guðmundsson orti: Mín fyrstu leikföng voru íslensk orð og engin leikföng gátu reynst mér betur. Á bls. 106 í “Undir kalstjörnu” segir Sigurður [...]
Líf og fjör
Þeir eru fáir dagarnir sem ekki færa manni eitthvað óvænt. Á föstudagskvöldið var fundur í leshópnum. Bókin, sem við lásum var Undir kalstjörnu eftir Sigurð A. Magnússon. Frábær bók og hefur margt að segja nútíimamanninum, sem vorkennir sér að þurfa að upplifa kreppuástand í þjóðfélaginu. Svo er hún gósenland fyrir íslenskukennara og alla sem unna [...]
Óvænt gjöf
Ágúst Torfa hefur lengi langað til að koma pabba sínum á óvart. Ætlaði að gera það á sjötugsafmælinu, en hugmyndin lét á sér standa. En um daginn kviknaði heldur betur á perunni. Fyrir tæpum 20 árum keypti Haukur stóra vespu ( mótorhjólí í skelfilegu standi með það fyrir augum að gera hana upp. Ekkert varð [...]
Jóhannes
Um daginn skruppum við Lára í bíó og sáum nýju myndina um hann Jóhannes. Það sem var hvað mest áberandi við myndina var að munnhreyfingar og tal passaði aldrei saman. Myndatakan var heldur ekki til að hrópa húrra fyrir henni, en sagan var skondin, þó mér fyndist hún varla halda dampi, en í henni nokkrir [...]