Archive > July 2009
Tónleikaferð um Austurland
Jæja, þá hafa þeir félagar, Haukur og Daníel, haldið fimm tónleika fyrir rúmlega 400 manns og mér skilst á Daníel að það sé ótrúlegur fjöldi og oft hafi hann spilað fyrir færri. En veiki punkturinn er fjármálin og þess vegna verða þeir ekki fleiri tónleikarnir að þessu sinni. Kostnaðurinn er ótrúlegur. Veltið bara fyrir ykkur [...]
Systurnar í Fannagili
..eru yndislegar. Ljúfmennskan skín af þeim. Þær eru greinilega mjög hrifnar hvor annarri. Ragnhildur “les” fyrir systur sína á kvöldin, en finnst mjög gaman að láta lesa fyrr sig. En það er nú bara ánægjan eintóm að verða við slíkri beiðni. Ég læt hér fylgja mynd af Ragnhildi að horfa á sjóvarpið og Bryndísi í [...]
Laugardagur til lukku
Þeir gerast ekki öllu betri, laugardagarnir. Fyrri hluta dags var ég í potti og á palli í frábæru veðri. Eftir hádegi byrjuðum við á sýningu Hönnu og Jóns Bjarmans. Hún var með málverk, en eftir hann var lesinn texti og ljóð. Þaðan fórum við í Listasafnið, en þar var verið að opna kreppusýningu frá 4. [...]
Góða veðrið
Í gær fór að rigna í Kaupmannahöfn, þannig að tímasetningin hjá mér var fullkomin. Ég held áfram að vera í góðu veðri og svona til að leggja áherslu á að ég væri komin heim, flutti ég með mér ný sæt dönsk jarðarber og þau voru borðuð hér með vinum og vandamönnum. Í dag eru svo [...]
Á heimleið
Nú er dvölinni í Höfn að verða lokið. Bara eftir að loka töskunni, kaupa nokkur sæt dönsk jarðarber og halda út á völl. Ég skrifa þetta á fartölvu og er alltaf að reka mig í flatmúsina og því hef ég ekkert skrifað um dvölina hér. Það sem ég hef skrifað hefur horfið út í loftið. [...]
Dalai Lama
Í gær, þegar Helen beið mín á Kaupmannahafnarvelli birtist sjálfur Dalai Lama. Hann gekk beint til hennar og vafði hana örmum. Trúlega hefur hann farið mannavillt, en ég lít svo á að hann hafi með þessu veitt henni blessun sína. Ekki hefði ég haft á móti því að vera í hennnar sporum. Hvað með þig?