Ragnhildur 21 mánaðar gömul unir sér vel með bók á leiðinni suður. Ég fékk þessa mynd í tölvupósti fra´foreldrum hennar rétt áðan og gat ekki stillt mig – vissi að pabbi yrði glaður að sjá hana.
Archive > June 2009
Sonardæturnar Ragnhildur Edda og Bryndís Eva
Ég get nú ekki stillt mig um að benda þér á yndislegar myndir af mínum yndislegu sonardætrum. Smelltu bara á Ágúst Torfa og Evu Hlín hér til hægri og þá er leiðin greið að myndunum.
Frábær helgi
Á laugardaginn vorum við heima og það borgaði sig, því hér komu góðir gestir og sátum við með þeim úti í solskininu á pallinum. Ég meira segja spilaði skrafl, sem mér þykir svo skemmtilegt, við Elínu vinkonu mína. Á pallinum, auðvitað. Svo kom sunnudagurinn, sem beðið hafði verið eftir. Fyrst var farið í kirkju, nema [...]
Tónleikar í Þorgeirskirkju
Ég held altarinstaflan í Þorgeirskirkju slá öllu við. En nú er komið að tónleikum þeirra félaga Daníels og Hauks þar á sunnduaginn klukkan 5. Ég auglýsti í Hlaupastelpunni og vona að aðsókn verði þokkaleg. Ég er nú líklega ekki nógu góður umboðsmaður, en svona er þetta nú bara. Svo verða tónleikar í Mjóafirði og á [...]
Kaffi og matarboð í góðu veðri
Góð vika í góðu veðri, hvað með það þótt það rigni smávegis dagpart. Það er spáð afar hlýrri og sólríkri helgi. Á mánudaginn var kvennaboð í Löngumýrinni og áttum við þar góða stund með góðum veitingum og spjalli. Í gær var svo matarboð og annað á morgun. Hvers getur maður frekar óskað sér? Við höfum [...]
Vinafagnaður
Í gær ætluðum við í kirkju klukkan ellefu, en það var ekki í boði hvorki í okkar sóknarkirkju né Glerárkirkju. Á báðum stöðum var boðið upp á kvöldmessur í gærkvöldi. Við hlustuðum því á sr. Magnús á Ísafirði, en hann nýtti sér ýmsa hljóð í predikuninni. Heyrðum við bæði lóuna og sr. Magnús syngja í [...]
Veður og vinir
Ja, veðrið í gær var bara eins gott og hægt var að óska sér, sóla, logn og hlýindi. Við tókum lífinu létt og vorum heima en fengum nokkra góða gesti. Það undarlega var, að þrátt fyrir veður og flugsýningu sátum við inni meiri hluta dagsins. Það er enn undarlegra fyrir það, að gestirnir sem komu, [...]
19. júní
Fyrir nokkru fékk ég bréf þar sem mér var “boðið” á dagskrá um skáldkonuna Elínborgu Lárusdóttur í menningarhúsinu Miðgarði Skagafirði19. júní kl 13:00. Þegar mér bauðst auk þess ferð með þeim Rúnari og Guðnýju ákvað ég að fara. Ferðin var góð og dagskráin athyglisverð. Ekki var verra, að Skagfirðingar eru búnir að taka húsið í [...]
“Sumarlookið”
Jæja, þá er það komið sumarlookið (fyrirgefið slettuna) og einkennist það af kjól og eyrnalokkum, sem ég keypti fyrir sunnan um daginn. Sólveig Helga vinkona mín var rmeð mér, þegar innkaupin voru gerð, en Allý vinkona tók myndina. Ætlunin var að fara í honum í bæinn á 17. júní, en veður kom í veg fyrir [...]
Það hefur rignt í allan dag á Akureyri
Já, veðrið hefur verið heldur dapurlegt á þjóðhátíðardaginn, sérstaklega þegar maður rifjar upp veðrið í gær, sem var yndislegt. En þetta er nú ekki í fyrsta skipti,s em veðrið er svona. Einu sinni vorum við á Djúpavogi á 17. júní og það sá varla út úr augum fyrir þoku og sudda, en hvað með það. [...]
