Archive > May 2009

Stórsveit Reykjavíkur

Í gærkvöldi fór Haukur á Græna hattinn að hlusta á Stórsveit Akureyrar, en ég fór í fermingarveislu seinni partinn og ákvað að láta þessa tónleika eiga sig, en í dag dreif ég mig að hlusta á Stórsveit Reykjavíkur og það var verulega gaman. Erlendur útsetjari, tónskáld, stjórnandi og saxafónileikari Bob Mintzer var með í för [...]

Continue reading

Til hamingju með daginn, Ágúst Torfi minn

Drengurinn minn er 35 ára í dag. Við héldum upp á það með ís í Vín efrtir guðsþjónustu í dag, og áttum indæla stund saman. En fyrst ég minntist á guðsþjónustuna get ég ekki orða bundist. Kirkjugestir voru 12 í hátíðaguðsþjónustunni. Kirkjukórinn var fullskipaður og tónlistin glæsileg. Af hverju kemur fólk ekki í kirkju?

Continue reading

Betlað í göngugötunni

Hann var að vísu ekkert lílkur betlurum í útlöndum drengurinn, sem gekk á milli manna í göngugötunni á Akureyri í gær og spurði fólk, sem á vegi hans varð, hvort það ætti 200 krónur. Ekki veit ég hvað hann ætlaði að gera við peningana. Ekki þurfti hann á þeim að halda í strætó, en hér [...]

Continue reading

Kórsöngur

Mér var bent á að ég hefði ekki sagt frá því hvenær dagskráin byrjaði í næstu viku, en hún byrjar klukkan þrjú, 1500.

Continue reading

Byggingameistarinn

Hér eru tvær myndir  af Ragnhildi Eddu, sem sýna turninn, sem hún byggði og ánægjuna yfir vel heppnuðu  verki

Continue reading

Tónleikar í Vopnafjarðarkirkju

Þá er það loks ákveðið, tónleikar Hauks og Daníels verða í Vopnafjarðarkirkju þriðjudaginn 9. júní kl. 20:30.  Menningarmálanefnd með Magnús Má í broddi fylkingar hefur tekið þá að sér, sem merkir, að þeir ætla að flytja píanó í kirkjuna og auglýsa tónleikana með dreifibréfi, sem hefur reynst vel í Vopnafirði.  Það verður ánægjulegt að hitta [...]

Continue reading

Undirbúningur hafinn

Nú líður að því að við bjoðum í þriðja sinn í söng og súkkulaði. Að þessu sinni köllum við það kórsöng og súkkulaði, en það er vegna þess að Hörpukórinn frá Selfossi, 50 manna kór, ætlar að syngja í stofunni okkar. Við ætlum að setja upp stóla fyrir svona 40 – 50 manns . Eftir [...]

Continue reading

Til hamingju Hlín

Hlín systir mín átti erindi suður í gær og notaði ferðina m.a. til þess að taka fyrir hönd PAN  þátt í golfmóti á vegum PSÍ, sem haldið var í dag í Mosfellsbæ. Veðrið var nú svona og svona, haglél og rigning, en ekki breytti það  þeirri staðreynd, að HLIN VANN, HÚN FÉKK GULLIÐ. Ég er [...]

Continue reading

Vika liðin

Já, það gengur svona lífið, allt í einu er komin ný vika og sú síðasta hefur liðið eða jafnvel horfið með ógnarhraða. Síðan síðast hefur margt gerst, fundur í PAN, heimsóknir, tónleikar og kirkjuferðir. Ég hef farið á tónleika, sem mér hafa fundist mjög góðir og aðra, sem voru hundleiðinlegir. Hauki finnst ekki að maður [...]

Continue reading

Litla Ljót 50 árum síðar

Það hittust fleiri hópar um þessa helgi. Bekkurinn, sem var uppistaðan í fyrstu uppfærslu á Litlu Ljót, bauð okkur Hauki til veislu þennan sama dag og hófst hún í Langholtsskóla. Svo var haldið í veislusalinn og boðið upp á herlega veislu. Eyrún (Litla Ljót) lét sig ekki fyrr en hún hafði fengið Hauk til að [...]

Continue reading

prev posts