Í þættinum Britain has got talent birtist hver stjarnan af annarri. Hlustið bara á hina 10 ára gömlu Hollie Steel.
Archive > April 2009
Sonardæturnar
Nú er dúllan orðin þriggja vikna og opnar öðru hvoru augun fyrir okkur. Annars er hún ósköp vær og góð. Ragnhildur er orðin hálfs annars árs og er sífellt að bæta við orðum. Við hittum þær reglulega og stundum eru teknar myndir.
Akandi í Héðinsfjörð
Já, á sunnudaginn var bauð Fjallabyggð rútuferðir í gegnum göngin milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Að vísu misreiknuðu þeir sig hvað fjöldan varðar og því varð biðini ansi löng fyrir suma. Við biðum í klukkutíma, en sumir mun lengur og það var kalt í veðri, a.m.k. fannst manni það þar sem maður stóð og beið. Það [...]
Kosningadagur 2009
Undanfarna helgi tók ég nokkrar myndir. Katrín og Stefán komu í heimsókn til þess að fara með okkur í jarðarför Laufeyjar, móðursystur þeirra systkina, sem var jarðsugnin frá Húsavíkrukirkju kl. 15:00 á laugardag. En laugardagsmorguninn var einnig tíðindamikill. Á Möðruvöllum var guðsþjónusta kl. 10, sem markaði upphaf héraðsfundar. Haukur predikaði og gerði það af skörungsskap. [...]
Nunnukaffi
Á sunnudaginn var bauð fjölskyldan í Fannagilinu okkur í fjáröflunarkaffi hjá nunnunum, sem passa Ragnhildi. Veitingar voru glæsilegar og gaman að hitta þessar glaðlyndu og ljúfu konur.
Útsýni
Í gær tók ég þessar tvær myndir af suðursvölunum. Önnur sýnir útsýni fram í fjörðinn, sem er dálítið skert af lerkitrjánum, sem stækka og stækka. Hin er tekin í norður og horft með suðurhlið hússins.
Sonardæturnar
Ragnhildur er nú 18 mánaða og litla systir tveggja vikna. Hér er nokkrar myndir, sem ég tók um páskana af þessum elskum
Að loknum aðalfundi PAN
Undanfarin vika hefur að mestu farið í undirbúning aðalfundar PAN, sem haldinn var hér heima í gær. Ég þurfti að skrifa ávarp, skýrslu stjórnar, önnur mál og svo gera húsið klárt og baka. Elskurnar í stjórninni gerðu allt, sem þær tóku að sér og hefðu gert meira, ef farið hefði verið fram á það. Við [...]
Páskadagarnir
Á páskadagsmorgun fórum við upp fyrir allar aldir og vorum mætt í kirkjuna vel fyrir átta. Sr. Guðmundur sá um athöfnina og gerði það af mestu prýði. Eftir messu var haldið í súkkulaði og brauð í boði sóknarnefndar. Svo var komið að páskahlátrinum, sem var nú í umsjón Guðmundar. Hann fékk aðstoð og las hjálparhellan [...]
Britain has got talent
Í síðasta þættinum kom fram 47 ára gömul kona, sá og sigraði. Lítið á: http://www.youtube.com/watch?v=luRmM1J1sfg&NR=1 Það er þess virði.
