Já, helgin var sannarlega róleg og góð. Helga vinkona kom á föstudaginn og fórum við á Bláu könnuna, þar sem við áttum stefnumót við Þóru. Guðný og Bryndís bættust við og síðan héldum við Helga og Guðný heim í Galtalæk þar sem Haukur beið með matinn. Á laugardeginum fór Helga á þing myndlistarkennara og hélt [...]
Archive > March 2009
Til hamingju með áfangann
Í dag er Ragnhildur Edda Ágústsdóttir hálfs annars árs. Af því tilefni er þessi mynd sett hér, en hún var tekin í gær. Til hamingju, elsku kerlingin.
Tenórinn
Hafirðu ekki séð leikritið Tenórinn með Guðmundi Ólafssyni skaltu strax kaupa þér miða á síðustu sýninguna, sem verður á föstudaginn langa. Hann er hreint frábær. Ekki draga að fá þér miða. Góða skemmtun.
Í sól og sumaryl
Það er ótrúlegt veðrið þessa daga. Jafndægri á vori nýliðin og hér skín sólin daginn út og daginn inn. Ég man ekki hvort spáin var svona, en eitthvað hef ég þó heyrt um að það muni kólna og fara að snjóa eftir helgi, en den tid, den sorg, eins og Danirnir segja. Nú er sem [...]
Árshátíð PAN
í dag var hin langþráða árshátíð PAN. Í félaginu eru 46 manns, en á árshátíðina mættu 54. Það er ekki sem verst. vestursalurinn hjá Friðriki V var fallega skreyttur og sólskinið flæddi inn um gluggana. Klukkan var hálf eitt þegar allir höfðu fengið sæti. Allir prúðbúnir og brosandi. Það var fulli kokkurinn úr leikritinu Þjónn [...]
Spilamennska
Undanfarið hefur vinkona mín, Svanhildur, öll v erið að hressast ef tir uppskurð á hné. Við höfum aðeins verið að athuga hvað hún getu rmeð því að spila. Fyrst var það rommý, svo kryppa og loks eitt skrafl í gær. Hún fer að verða fær í flestan sjó.
Bóklestur
Á mánudagskvöldið hittist bókaklúbburinn á Bláu könnunni. Þar var sneisafullt af fólki. Ekki kreppulegt þar. Bókin, sem við áttum að vera búnar að lesa heitir Segðu mömmu að mér líði vel eftir Guðmund Andra Thorson. Þær, sem höfðu lesið bókina, voru ánægðar með hana og því fór ég daginn eftir út í skóla og fékk [...]
Þjónn í súpunni
Í gærkvöldi bauð ég Hauki út að borða. Stefnan var sett á Friðrik V, þar sem Þjónn í súpunni, leikrit, sem fer fram á meðan gestir borða. Þarna er komin fjölskylda, sem segist hafa keypt staðinn á Friðriki V og heiti hann nú Kristján IX. Adda leikur einn þjónninn, en annars eru leikarar í öllum [...]
Bækur
Ég var að ljúka við að lesa tvær bækur, sem ég fékk á Amtinu í vikunni. Fyrri bókin, Bláir skór og hamingja, eða eitthvað í þá lund, var nýjasta bókin um kvenspæjarastofu nr. 1 í Botswana. Ég naut þess að lesa hana eins og fyrri bækurnar. Þetta eru yndislegar bækur. Seinni bókin var Vetrarsól eftir [...]
Ragnhildur Edda
Ragnhildur Edda veður háfls annars árs þann 27. þessa mánaðar. Hún er dugnaðarforkur og ekki spennt fyrir því að sitja kyrr mjög lengi. Í gær komu þau feðgin í heimsókn og tók ég þá þessar myndir. Ég veit ekki hvernig ég á að losna við aukaorðin í textanum með myndunum stækkuðum. Getur þú hjálpað mér?
