Archive > February 2009

Vinsælasta spurningakeppnin

Spurningakeppni er með því skemmtilegra, finnst mér. Útsvarið hefur verið á dagskrá frá í haust og nú er Gettu betur komin í gang. Hún er auglýst sem vinsælasta keppni allra tíma, en ég skal viðurkenna það hér og nú, að mér finnst Útsvarið ólíkt skemmtilegri þáttur, mun betur uppbyggður, a.m.k. ef marka má þættina sem [...]

Continue reading

Einelti

Í morgun sá ég um sálarstaldrið í Kirkjubæ. Ég kynnti bókina Undantekninguna, sem ég hef áður nefnt hér. Hún fjallar m.a. um einelti og er afar sterk. Urðu fjörugar umræður á eftir og ég lánaði Öllu bókina. Það ættu sem flestir að lesa hana.

Continue reading

Konudagur

Í gær byrjaði góa skv. gömlu tímatali. Mér til ánægju hef ég undanfarin fjögur ár boðið hópi af konum í léttan hádegisverð á konudegi, en svo nefnist fyrsti dagur í góu. Ég takmarka hópinn við 40 konur, en þá þarf ég ekki að fá lánlaðan borðbúnað. Undirbúningur var hefðbundinn. Á laugardeginum kom frænka mín Sara [...]

Continue reading

Fúlar á móti

Í gærkvöldi var leikritið Fúlar á móti eftir Jenny Eclair og Judith Holder, sem eru breskar, ef marka má fánana utan við leikhúsið, með þeim Eddu Björgvins, Helgu Brögu og Björk Jakobs. Leikstjóri var María Sigurðardóttir leikkhússtjóri. Ég held ég  hafði aldrei verið í leiksýningu fyrr, þar sem  hláturinn rofnaði bókstaflega aldrei. Þetta var ótrúlega [...]

Continue reading

Tíðarfar

Veðrið var ljómandi gott undanfarið, en ekkert er eilíft og síst af öllu góða veðrið. Í gær var allt autt og planið að verða hálkulaust, en í morgun var byrjað að snjóa og nú hefur mullað í allan dag og bara kominn þó nokkur snjór. Ég fór í klippingu til Sólrúnar, fer til skiptits til [...]

Continue reading

Föstudagur

Í morgun fór ég að vanda í leikfimi á Bjarg. Áður en tíminn hófst kynnti ég könnun, sem ég hafði verið beðin að dreifa meðal félagsmanna, frá iðjuþjálfanemum um þörf fyrir dagvistun hjá fólki með langvarandi sjúkdóma. Við vorum alls fimm svo nú er ég búin að koma af mér helminginum af könnunum. Hinn hlutann [...]

Continue reading

Sjúkrahúsheimsóknir

Við höfum eiginlega verið fastagestir á sjúkrahúsinu síðan fyrir jól, Haukur þó farið oftar en ég. Þar  hafa legið ýmsir vinir okkar, stundum þrír á sama tíma. Þá  hefa heimsóknirnar tekið tíma, en hver hefur áhyggjur af því? Nú er það vinkona okkar Svanhildur, sem er að jafna sig eftir hnéuppskurð. Trúlega verður hún send [...]

Continue reading

Bridge

Jæja, þá er aftur komið að því að spila bridge. Undanfarið hefur verið í gangi sveitakeppni, sem við tókum ekki þátt í. Hún er reyndar ekki búin, en eldri borgarar (eldri en 60 ára) eru með 3ja eða 4 daga keppni, sem byrjar í dag og við Helen erum skráðar þar og hlökkum mikið til. [...]

Continue reading

Myndin góða

Ef einhver vill sjá lokaniðiurstöðuna, þá er myndin á vefnum ásamt þeim nöfnum, sem tókst að hafa upp á. Enn vantar tvö nöfn. Efst á þessari síðu er linkur á  Dimmisjón 1961.

Continue reading

Það er efinn

Við systur brugðum okkur í bíó eitt kvöldið. Ég hafði ekki kynnt mér framboðið, en Hlín sagðii að það kæmu tvær myndir til greina, Sagan af Benjamin Button og Efinn. Efinn varð fyrir vainu einfaldlega vegna þess að hin myndin er 2 tímar og 40 mínútur. Þegar ég sá svo úr hinni myndinni, áttaði ég [...]

Continue reading

prev posts