Archive > January 2009

Litli vin

Ljóðið Litli vin er eftir Freystein Gunnarsson. Hauk vantaði þennan texta um daginn og leitaði á Netinu, en þar var ekkert að finna. Þá leituðum við í smiðju til Möllu vinkonu, sem kunni textann nokkuð, þ.e.a.s. fyrri vísuna.  Elín vinkona kunni sömu vísu, en dálítið breytta, ÞÁ var ekki um annað að ræða en að [...]

Continue reading

Fækkar á sjúkrahúsinu

Jæja, þá er bara ein vinkona okkar eftir á sjúkrahúsinu að við vitum. Hún er með lungnabólgu og verður eitthvað lengur. Svo enn eigum við erindi á sjúkrahúsið. Ekki gleyma að spíraþvo, þegar farið er inn á deildina.

Continue reading

Helgarkrossgáturnar

Um helgar bíð ég alltaf eftir krossgátunum í Mogganum. Ég lít á laugardagsgátuna eins og upphitun og hlýt að viðurkenna, að þar er stundum beðið um sértækari orð en ég hef í mínu orðasafni, sérstaklega þegar spurt er um efnafræði, sem ég er búin að gleyma. En þá er netið notað eða vinkonurnar, sem eru [...]

Continue reading

Synfóníutónleikar

Í gær hélt Synfóníuhljjómssveit Norðurlands tónleika, sem ég reyndar varð að slepa fyrir kvennapartý, en eins og frarm hefur komið áður, get ég ekki verið á tveimur stöðum samtímis. Haukur fór á tónleikara og var mjög ánægður og sama sagði Hlín. Atli sonur Hlínar var í hljómsveitinni og gekk vel. Til hamingju Atli.

Continue reading

Sjúkrahúsheimsóknir

Undanfarið hafur borið meira á því en við erum annars vön, að fólk hafi verið lagt inn á sjúkrahús með sýkingar. Tvisvar hafa þessir vinir okkar verið settir í sóttkví vegna þess að þeir gætu smitast af einhverju utanaðkomandi og því allar heimsóknir verið bannaðar  um tíma. Nú eru hvorki meira né minna en þrír [...]

Continue reading

Ef maður gæti…

Já, ef maður gæti nú verið á tveimur stöðum á sama tíma. Þá væri nú gaman. Að minnsta kosti finnst manni það stundum. Eins og t.d. á laugardaginn var. Það var engin spurning að það að f ylgja Rúnu hafði algjöran forgang, en á sama tíma hittist hópur, sem ég tilheyri í 60 ára afmæli [...]

Continue reading

Í bíó

Ekki hef ég nú farið oft í bíó seinni árin, en nú er ég búin að fara tvisvar í síðustu viku. Fyrri myndin var Ástralía, þriggja tíma stórmynd með Nicole Kidman. Ekki fann maður fyrir því hvað hún er löng og segir það manni ýmislegt. Seinni myndin var svo Viltu verða milljarðamæringur? Ég var hrifin [...]

Continue reading

Helgin

Á laugardaginn fylgdum við Sigrúnu Jakobsdóttur, Rúnu, nágranna okkar og vinkonu til margra ára, til grafar. Hún var jarðsungin að Hofi í Vopnafirði að viðstöddu fjölmenni, þ.a.m. voru 4 prestar. Eftir athöfnina bar boðið í kaffi í hótel Tanga og hittum við marga góða vini og kunningja frá liðinni tíð. Ágúst Torfi fór að sjálfsögðu [...]

Continue reading

Falið vald og falið fylgi

Bókin Falið vald eftir Jóhannes Björn Lúðvíksson kom f yrst út árið   1979 og skömmu seinna eignaðist ég hana og las hana mér til skelfingar, ánægju, upplýsingar, skemmtunar – varla, en hún hefur ekki gleymst, svo mikið er víst. Hún kom út endurskoðuð 1997 og er báðar bækurnar að finna á vefnum vald.org og mæli [...]

Continue reading

Dauðasyndin reiði og andstaða hennar þolinmæðin

Sú dauðasynd, sem er mest áberandi í þjóðfélaginu um þessar mundir er reiðin. Menn tala  um réttláta reiði. Hver ákveður að dauðasynd sé réttlát? Það sem mér finnst einkenna reiðina, er fyrst og frermst það að hún  eyðileggur þann sem er reiður. Sá sem reiðin beinist að fer rólegur að sofa (væntanlega) og finnur ekkert [...]

Continue reading

prev posts