Síðustu dagar hafa verið fljótir að líða í góðum félagsskap góðra vina. Á aðfangadagskvöld borðuðum við með unga fólkinu eftir að hafa farið með kerti í garðinn á leiði þeirra Halldórs og Petrínu eins og við höfum gert öll jól síðan við fluttum hingað 1985. Veðrið hafði verið heldur ókræsilegt fyrr um daginn, en var [...]
Archive > December 2008
Gleðileg jól
Ágætu vinir nær og fjær. Ég óska ykkur gleði á jólum og nýju ári. Þakka ykkur góðu minningarnar, sem þið gáfuð mér. Hittumst heil á nýju ári.
Skata
Í dag hélt ég skötuveislu. Ég er í svona skötuklúbb með nokkrum frábærum konum og skiptumst við á að sjá um matinn og í dag var komið að mér. Ég hefði raunar átt að sjá um matinn í fyrra en þá voru einhver vandræði með að fá skötu og féll boðið því niður það árið. [...]
Jólasöngur alls staðar
Desembermánuður hefur einkennst af tónleikahaldi. Það liggur við að hægt sé að komast á tónleika á hverju kvöldi. Ég hef ekki farið oft, en Haukur þó oftar. Ég fór t.d. á jólasöngva kirkjukórsins og tónleika til styrktar sjóði, sem stofnaður hefur verið til minningar um sr. Þórhall Höskuldsson. Hvoru tveggja voru ágætir tónleikar. Sérlega var [...]
Frábær stemning
Á laugardaginn var eins og þú veist boðið upp á jólasöngva og súkkulaði. Þaðkomu margir góðir gestir, þó margra væri saknað. Krossbandið fór á kostum og Valmar og Haukur slóu í gegn. Þegar þeir voru klappaðir upp kom í ljós að þeir höfðu ekki æft fleiri lög og Haukur spurði hvaða lag menn vildu heyra [...]
Fyrir hönd vandamanna
Ég vona að hún Anna mín Björns kennari og ljóðskáld fyrirgefi mér að ég skuli birta hér ljóðið hennar, sem ber heiti þessa pistils, og ég fann á gamalli Morgunblaðsúrklippu. Fyrir hönd vandamanna Þegar ég finn tímann nálgast, fer ég í svörtu sparikápuna og set á mig litla, hvíta hattinn minn með svörtu blómunum, slörinu [...]
Jólasöngur og súkkulaði
Á laugardaginn kl. 13:30 eru allir velkomnir í stofuna okkar á meðan húsrúm leyfir Þeim er boðið að líta hér inn og hlusta á og syngja jólalög. Þarna koma fram Haukur og Valmar, hljómsveitin Krossbandið, söngkonan Ragheiður og seinna syngjum við öll saman lög, sem Snorri valdi. Nú vantar bara stóla, en þeir koma líklega [...]
Bráðum koma blessuð jólin
Já, blessuð jólin nálgast. Þau færast alltf nær og hvert verkið af öðru er að baki. Í gær bakaði ég marenge og bjó svo til jólaísinn til þess að nota rauðurnar. Annars hefur aðalverkið undanfarna daga verið að útbúa ljósmyndabók fyrir vinafólk okkar, en hún verður jólagjöf til sonar og tengdadóttur. Þurfti ég að fara [...]
Glæsilegur jólafundur
Í gær var jólafundur PAN hér á Galtalæk. Um þrír tugir félagsmenn og gestir mættu og borðuðu góðan mat, sungu, hlustuðu á jólasögu og spjölluðu og í lokin voru stigin nokkur dansspor. Stjórnarkonur hjálpuðu við undirbúninginn en fjölskyldan sá um fráganginn. Haukur minn fékk sér ekki einu sinni að borða. Hangikjötið, sem kom austan úr [...]
Vetrarsól
Þetta er nafn á nýrri bók eftir Auði Jónsdóttur, sem hún Kristín gaf þrjár stjörnur í þætti á N4 í gær. Ég las einu sinni bók hennar Fólkið í kjallaranum og verð að viðurkenna að ég hafði takmarkaða ánægju af. Nú hefur Vetrarsól verið tilnefnd til verðlauna og ég hugsaði mér að lesa hana, en [...]
