Archive > November 2008

Notkun eignarfornafna

Hvað hefur komið yfir þessa þjóð? Notkun eignarfornafna hefur aukist mjög á undanförnum árum. Nú virðist það hanga aftan við næstum hvert nafnorð. Sagt er fóturinn þinn, augað þitt, lífið þitt o.s.frv. Skelfing þykir mér þetta leiðinleg þróun. Hvernig ætli þetta hafi komið til?  Mér finnst þetta sérlega hallærislegt og tilgerðarlegt. Hvað finnst þér? hilda@atgangur.net

Continue reading

Heimspekilegar umræður

Í stað þess að fara með Hauki í kirkju í dag tók ég heimspekina fram yfir eins og ég hef gert nokkrum sinnum á þessu hausti. Að þessu sinni var það frænka mín Sigrún Sveinbjörnsdóttir, sem talaði um skynsemina og hvort sjálfshjálparbækur væru nýtilegar eða ekki.  Fór hún á kostum og urðu umræður fjörugar. Þarna [...]

Continue reading

Enn og aftur

Í þriðja sinn á þessu hausti er jörð orðin alhvít. Ekki hefur veðrið verið slæmt og því lítið um skafla og engin ófær’ð. Ég fór í bæinn og hafði Elínu með mér. Við fórum í nokkrar búðir og svo í Ketilhúsið, þar sem  fullt var af hönnuðum, sem þarna sýndu og höfðu til sölu margvíslegan [...]

Continue reading

Konfektgerð og snyrtivörur

Í dag gerðum við Elín konfekt eins og við höfum gert undanfarin ár eða síðan við Þorgerður og María hættum stórframleiðslunni. Hún var nú lía komin út í öfgar. Við hittumst seinni part dags og unnum á fullu fram yfir miðnætti og fórum h ver heim til sín með marga dalla fulla af margvíslegum tegundum [...]

Continue reading

Heiðurskona kvödd

Kristjana Jónsdóttir frá Mýri í Barðardal, mamma Konna á Laugum var jarðsungin í gær í Glerárkirkju. Kórinn söng, enda Kristjana í honum í áratugi. Sr. Gunnlaugi mæltist ágætlega og á eftir var boðið upp á kaffi í safnaðarheimlinu. Þetta hefði Tóti á Húsavík sagt að væri góð jarðarför. Við hittum margt manna og sátum til [...]

Continue reading

Annríki

Það er nú meira hvað mikið er um að vera þessa dagana. Það er beinlínis dagskrá frá morgni til kvölds. Á laugardaginn fórum við á frumsýninguna  á nýju leikriti eftir Snæbjörn Ragnarsson um þá Láp og Skráp og jólaskapið. Þetta er ljúft jólaleikrit og virtist unga fólkið mjög ánægt. Til hamingju Snæbjörn. Þá lá leiðin [...]

Continue reading

Laufabrauðið

Á fimmtudaginn fórum við austur með vinum okkar og var ætlunin að fletja út laufabrauðið. Það snjóaði smávegis á okkur þennan morgunn, en í Aðaldal var ökkladjúpur snjór yfir öllu. Mjög jólalagt. Við vorum þarna alls 8 manns og gekk rífandi að fletja út, enda tæknin með í verki. Áttum við mjg góða stund saman [...]

Continue reading

Ný vika

Á sunnudaginn fórum við á  heimspekikaffi á Bláu könnunni, þar sem Hjalti Hugason  talaði um kirkju, trú og tungu. Ekki  varð ég nú upprifin frekar en fyrri daginn og umræðurnar héldu mér  varla vakandi. Þá lá leiðin í kirkju, en guðsþjónustan  var klukkan tvö þennan dag, hátíðaguðsþjónusta í tilefni afmælis kirkjunnar, auk þess sem sr. [...]

Continue reading

Frábær heimsókn

Á föstudaginn komu hér góðir gestir. Fjórir akandi og tveir fljúgandi. Þeir komu rétt mátulega til að borða með okkur þverskorna ýsu með kartöflulm og hömsum. Gerðu þeir matnum góð skil og varð ég fegin – vissi ekki hvernig þeir myndu bregðast við. Hér gistu fjórir, einn karl og þrjár konur. Seinna um kvöldið brá [...]

Continue reading

Fundur undirbúinn

Á laugardaginn verður fundur í PAN. Hópur kemur í heimsókn að sunnan og ætla fjórir úr hópnum að tala á fundinum. Við áttum von á að Pésinn kæmi í hús í síðasta lagi í dag, en ekki gekk sú rófa. Ef hann kemur ekki á morgun verðum við að hringja í liðið. Ég er því [...]

Continue reading

prev posts