Eins og þeir, sem þekkja mig, er ég hrifin af öllu lilluðu. Þegar Mössubúð á Torginu auglýsti lág lilla stígvél, stóðst ég ekki málið og dreif mig á staðinn. Afgreiðslustúlkan, ljúf og falleg, og er fyrrverandi nemandi minn, fullvissaði mig um að ég væri ekki of gömul fyrir svona stælskó, þeir væru flottir. Þá stóðst [...]
Archive > October 2008
Góður gestur
Í gær sendi ég línu til Láru og spurði hvort hún hefði ekki ætlað að taka myndir af grýlukertum. Hún brá skjótt við og vopnuð myndavél hélt hún út á svalir. Síðan tók hún sér skóflu í hönd og mokaði leiðina að pottinum. Þegar því var lokið, spiluðum við skrafl og átti ég ekkert í [...]
Góður afmælisdagur
Já, það rættist heldur betur úr deginum. Gestirnir komu allir utan einn, jafnvel Hlín kom frá Dalvík eftir að hafa mokað og mokað. Það er þónokkur snjór á planinu, en allir komust klakklaust inn og út aftur. Sonja kom með rósina frá Örnu, sem aldrei gleymir mér. Hún færði mér alltaf rós á afmælinu mínu [...]
Allt á kafi
Ég man ekki eftir eins miklum sjó og nú er á afmælisdeginum mínum. Ja, það er eins gott að ég á ekki stórafmæli og allt tilbúið fyrir fullt hús af gestum. Að vísu á ég nóg´með kaffinu, ef einhver skyldi leggja það á sig að koma í snjónum og veðrinu, en ekki reikna ég með [...]
Fyrsti vetrardagur
Í dag er fyrsti vetrardagur. Það leynir sér ekki, að veturinn er kominn. Það snjóar og snjóar. Það er samt ekki orðið svo mikið að við komumst ekki út af hlaðinu, en þessu er ekki lokið, langt í frá. Eftir hádegi í dag var opnuð sýningin Orð Guðs í Listasafninu. Við fórum ekki, ætlum seinna, [...]
Utanlandsferðir
Á fimmtudaginn komu eldri borgarar heim frá Benidorm. Hafði ferðin gengiði vel, en auðvitað var fólkið þreytt eftir langan dag og langt flug. Mér finnts dálítið merkilegt að ekki skuli vera tekið tillit til aldurs farþega, þegar svona feðir eru skipulagðar. Það er ekki gaman að koma úrvinda heim og vera kannske lengi að jafna [...]
Sálarstaldur og kaffihús á föstudegi
Á föstudögum förum við eins og venjulega á sálarstaldrið í Kirkjubæ. Að þessu sinni var það Rafn, formaður sóknarnefndar Akureyrarkirkju, sem talaði og gerði vináttuna að umræðuefni. Spunnust síðan fjörugar samræður um vini og fjölskyldubönd. Voru þátttakendur óvenju fáir, en það hefur kannske verið veðri eða veðurspá að kenna. Klukkan þrjú, höfðu félagar í PAN [...]
Stórafmæli?
Detta mér nú allar dauðar lýs úr höfði. Ég fékk upphringingu áðan frá blaðamanni á Morgunblaðinu, sem spurði hvort hann mætti gera stórafmæli úr afmælinu mínu á sunnudaginn. Þá verð ég sextíu og fimm ára og hvernig sem ég lít á það sé ég ekki í því stórafmæli, svo ég bað hann kurteislega að bíða [...]
Bridge
Jæja, þá er þriggja kvölda mótið að baki. Mér gekk nú ekki sérlega vel og var neðst, en einhver verður að vera þar. Síðasta kvöldið gekk þó mun betur en það fyrsta of makker þakkaði mér kærlega. Ég verð að segja það, að það er góður mórall í hópnum og ekki annað sagt en það [...]
Ragnhildur
Ragnhildur kemur oft í heimsókn okkur til óblandinnar ánægju. Það er gaman að fylgjast með þeim stórstígu framförum, sem hún tekur. Að þessu sinni var það aðaláhugaefnið, að taka tóbakspontuna og greiðuna úr vasanum á skyrtunni hans afa og koma því þangað aftur. Í fyrstu gekk það brösuglega, en smám saman óx henni ásmeginn og [...]
