Vá, ég var að koma heim frá mínu fyrsta bridgemóti og lenti í 11. sæti í heildina en 10. í kvöld. Pörin voru alls 14. Ég ætla ákveðið að halda áfram og næsta þriðjudag hefst þriggja kvölda parakeppni og er ég búin að skrá mig. Það var gott að koma inn í þennan hóp. Fólkið [...]
Archive > September 2008
Fyrsti snjórinn
Undanfarið hafa fjöllin okkar verið hvít niður undir miðjar hlíðar og í dag snjóaði í byggð. Jörðin er of heit til þess að snjó festi, en það er hálka á öllulm heiðum. Í morgun fór ég á Bjarg og í kvöld er seinni hluti bridgemótsins, sem ég tók þátt í sl. þriðjudag. Það er uggur [...]
Ragnhildur eins árs
Við Katrín byrjuðum daginn á því að fara í Hagkaup og litum svo aðeins í bæinn og á Glerártorg. Við höfðum bakað marenge fyrir veisluna og gengum frá honum um hádegið. Svo var komið að því að drífa sig í veislu. Ragnhildur var fín í kjól, sem ég keypti í Ameríkuhreppi í vor leið. Hún [...]
Bravó
Á föstudagskvöldið var fyrsta sýningin á Dauðasyndunum í Rýminu. Þetta er gestssýning frá Borgarleikhúsinu. Þegar kom að því að hleypa leikhúsgestum í salinn heyrðust torkennileg hljóð að ofan og brátt birtust leikararnir í stiganum og þá byrjaði gamanið, sem hélst alveg óslitið til enda sýningarinnar. Þetta var sko leikhús í lagi. Frábært. Ég gæti alveg [...]
Afmæli í undirbúningi
Já, á laugardaginn verður Ragnhildur Edda ársgömul. Fyrstu gestirnir komu að sunnan í gær, Katrín mágkona mín og Stefán svili minn komu hér um kvöldmatarleytið í fyrradag. Þau eru ævinlega aufúsugestir á þessu heimili. Í gær fórum við í góðan göngutúr og svo var bakað. Eva hafði beðið okkur um marengetertu og úr eggjarauðunum varð [...]
Bridge
Í gærkvöldi fór ég í bæinn til að spila bridge. Bridgefélagið auglýsti tvímenning. Það var spilað á 7 borðum, 32 spil og ein yfirseta. Þarna voru bara 3 konur, við Helen og einhver Ragnheiður, sérlega aðlaðandi kona. Ég þekkti nokkra og þetta varð bara hið ljúfastas kvöld. Ekki veit ég hvar ég lenti í röðinni, [...]
Sjónlistaverðlaunin 2008
Á föstudaginn s.l. fór afhending sjónlistaverðlaunanna 2008 fram í Flugsafninu hér niðri á flugvelli. Við fengum boðskort og ákváðum að drífa okkur – gerðum það hvorki í fyrra né hitteðfyrra. Það var nú ekkert of hlýtt í flugskýlinu en flugvélarnar mynduðu fallega umgjörð um athöfnina. Þarna var boðið upp á vín og vatn, en lítið [...]
Ragnhildur Edda
Hana litlu sonardóttur mína langar til að geta gegnið, og notar ýmsar aðferðir til þess. Hún styður sig við stólinn sinn og æðir með hann um gólfið og svo er hjólið alveg öruggt, þar sem hún getur sest þegar hún er komin í sjálfheldu (kann ekki enn að beygja) eða þarf að hvíla sig. Pabbi [...]
IKE
Þegar fellibylurinn Ike gekk yfir um daginn olli hann víða usla. Nágrannar okkar í Litlagarði misstu t.d. þetta fallega tré.
Sunnudagur til sælu
Þrátt fyrir það að nú sé farið að halla á september er veðrið alltaf jafn gott og þó sólin skíni ekki allan daginn, þá skín hún a.m.k. alltaf einhverja stund á hverjum degi og þá stund nota ég gjarnan til að skreppa í pottinn. Ekki amalegt það. í gær fórum við í kirkju að vanda, [...]
