Myndir frá Söngur og súkkulaði. Fyrst eru fjórar myndir, sem Kristjana tók. 1. hljómsveitin, 2. Haukur að syngja með Valmari 3. Elín, sem er okkar bjargvættur. og loks 4. Hluti áhorfenda. Svo koma tvær myndir, sem ég tók. Önnur sýnir að gestir voru á ýmsum aldri og hin hvernig við notuðum skiltið við Drottningarbrautina til [...]
Archive > August 2008
Akureyrarvaka – Söngur og súkkulaði
Þrátt fyrir það að allir, sem við hittum kvörtuðu yfir útlitinu á dagskránni (gulir stafir á svörtum grunni), kvörtuðu undan því, að erfitt væri að lesa hana, ekki hægt að merkja við það, sem maður hafði áhuga á og að lokum að hún væri illa sett upp, ekki í skynsamlegri tímaröð og öllum atburðum gert [...]
Kleinur
Jæja, nú eigum við nær 400 kleinur,sem ætlunin er að bjóða gestum á laugardaginn kemur. Það er sem sagt ekki bara súkkulaði með söngnum, heldur líka kleinur. Ég er farin að hlakka mikið til að sjá hvernig þetta fer.
Söngur og súkkulaði á Akureyrarvöku
í fyrra vaknaði sú hugmynd hjá okkur Snorra Guðvarðs að standa saman að tónlistaruppákomu í stofunni okkar. Við höfum rætt þetta öðru hvoru, en nú virðist komið að því. Á laugardaginn klukkan eitt ætlum við að opna húsið fyrir þeim, sem hingað vilja koma – á meðan húsrúm leyfir. Kannske er þetta bíræfni. Kannske kemur [...]
Afmælismánuður
Ágúst er afmælismánuðrinn í minni litlu fjölskyldu. Katrín mágkona mín er fyrst, f. 11. ágúst, þá kom mamma mín heitin, f. 16. ágúst, þá Gerður 25. ágúst og svo Helga, dóttir Katrínar, 26. ágúst. Þá eru ótaldar vinkonur, sem sumar hafa verið nefndar, en aðrar ekki. Svona er lífsins gangur.
Gull eða silfur
Það er ótrúlegt hvað við eigum í raun erfitt með að vera ekki best í öllu. Silur á Ólympíuleikum er ekki daglegt brauð hjá lítilli þjóð. Vonandi tekst okkur að taka á móti handboltaliðinu með gleði í hjarta. Til hamingju strákar og takk fyrir allar ánægjustundirnar, sem ég hef átt fyrir framan sjónvarpið á undanförnum [...]
Í berjamó er gaman
Jæja, þá er ég búín að fara í berjamó. Ekki fór ég langt og ekki var ég lengi. Ég fékk vinkonu mínar Elínu Sigurjónsdóttur með mér og fórum við í móann ofan við Fannagilið. Þar var reyndar enginn heima en við notuðum okkur að geyma dótið okkar á pallinum. Það er engin lýgi að sólin [...]
Til hamingju
Jæja, þá er Jenna vinkona okkar orðin níræð. Í Morgunblaðinu í dag segir hún: “Þennan afmælisdag lít ég þannig á að það sé stutt í að ég kveðji samveruna með þessu fólki. Þess vegna verður hann mér núna mikilvægstur. Hann er á vissan hátt kveðja fyrir óvenjugjöfult líf í fagurri veröld með góðu fólki.” Til [...]
Tvíburarar, sem ekki eiga sama afmælisdag
Vinkona okkar , Jensína Jensdóttir, verður níræð á morgun. Flestir þekkja Jennu og Hreiðar, sem skrifaðu margar bækur saman og sitt í hvoru lagi. Færri vita að Jenna er tvíburi, en það undarlega er að tvíburasystir hennar, Áslaug Sólbjört, er aðeins eldri eða á afmæli í dag. Skemmtileg tilviljun.
Spakmæli
Eins og þú veist hefur pabbi minn safnað spakmælum í nær hálfa öld eða síðan sumarið 1962, en það sumar vann ég sem kokkur á stóru barnasjúkrahúsi í Dyflinni. Ég sendi pabba þá kort sem á stóð Don’t take life too seriously, you won’t get out of it alife anyhow. Þetta kort var uppsprettan af [...]
