Archive > July 2008

Ráðhústorgið

Einhver verslunareigandi í miðbænum ákvað að láta draum sinn rætast um grænt torg og í skjóli nætur lagði hann græna torfu á torgið. Fyrst datt mönnum í hug að fjarlægja hana, en Guði sé lof fyrir það að hætt var við það. Aldrei þessu vant var fullt af fólki á torginu, þegar við áttum þar [...]

Continue reading

Heimsókn í góða veðrinu og Listasafnið

Allý vinkona mín kom í heimsókn á mánudaginn og stoppaði í tvo daga. Hún fór heimleiðis í kvöld. Við áttum saman tvo dýrðar daga. Ég held að veður hafi aldrei verið betra og félagsskapurinn var góður. Meðal þess sem við gerðum var að fara í heimsókn á Listasafnið í gær með félögum mínum úr PAN. [...]

Continue reading

Myndir úr ferðinni

Jæja, þá er ég búin að setja inn myndirnar, sem ég tók um helgina. Þær eru hér Ég vildi bara að ég hefði tekið fleiri.

Continue reading

Frábær afmælisferð

Vinir mínir, Óli og Aðalbjörg standa á tímamótum núna. Hann varð fimmtugur í vetur og hún verður það í upphafi næsta árs. Í vetur buðu þau til veislu og ég held það sé von á annarri næsta vetur, en hápunktur hátíðahaldanna var helgin, sem nú er liðin. Þau buðu 50 manns, vinum og vandamönnum, í [...]

Continue reading

Fimmtudagur

Eins og venjulega fórum við í kirkju í hádeginu í dag, en á fimmtudögum er alltafkyrrðarstund. Sr. Óskar sá um stundina og gerði það vel að vanda. Ég kvaddi hann sérlega þar sem hann ásamt fjölskyldu sinni heldur til Vesturheims í næstu viku og ætlar að dvelja þar í níu mánuði. Ég fór svo í [...]

Continue reading

Heimsóknir og frábært veður

í fyrrakvöld buðu þau Katrín og Stefán okkur í bíltúr um Eyjafjörð fram. Haukur var leiðsögumaður en ég dottaði í aftursætinu. Góður endir á góðum degi, en þennan dag var eins og alla daga undanfarið sólskin og sunnanvindur. Í gærmorgun fórum við á fætur um sex-leytið og beint í sólina í pottinum. Síra Óskar var [...]

Continue reading

Nýja grillið

Í kvöld grillaði ég svínarif og kartöflur í nýja grillinu. Í desert grillaði ég svo ananas. Haukur hefur litla þolinmæði þegar það þarf að naga bein, en við hin nutum þess að fullu. Við tækifæri ætla ég að kaupa T-bone steik og grilla hana handa honum.

Continue reading

Nýr bíll

Svanhildur vinkona okkar var að kaupa sér nýjan bil.

Continue reading

Mama mia

Já, við fórum á bíó í gærkvöldi konurnar, þ.e. við Katrín og Hlín og skemmtum okkur svona líka vel. Því er ekki að neita að ekki skemmdi það hve leikararnir virtust hafa gaman af því sem þeir voru að gera. Í morgun ákváðum við að borða hádegismatinn hjá Friðriki V. Að þessu sinni var boðið [...]

Continue reading

Góðir dagar

Á sunnudaginn fórum við að vanda til kirkju. Þá lá leiðin inn í sveit þar sem verið var að ganga frá eftir brúðkaupsveislu. Erindið var eyðublað, sem þurfti að fylla út og svo hafði ég með mér nokkrar myndir frá deginum áður og svo eina gamla. Veðrið var indælt. Á mánudeginum komu þau Katrín og [...]

Continue reading

prev posts