Archive > June 2008

Rómantík í góða veðrinu

Eftir hádegi á þriðjudag fór ég í heimsókn til Sigrúnar vinkonu minnar og slappaði af fram að afmælisveislunni, sem var aðalerindi okkar systra suður. Ég læt tvær myndir fylgja.

Continue reading

Velheppnuð suðurferð

Á mánudaginn var brugðum við Hlín  undir okkur betra fætinum og skruppum suður. Hlín ók, enda mikill ökumaður. Veðrið var mjög gott þennan dag þannig að við lögðum ekki af stað fyrr en Hlín var búin í golfinu og auðvitað var golfpokinn hafður með suður. Á þriðjudeginum hafði ég mælt mér mót við gamlar bekkjarsystur [...]

Continue reading

Tobba fimmtug

Tobba eða Torfhildur Stefánsdóttir, kennari við Síðuskóla og meðlimur í þeim rússneska átti fimmtugsafmæli í síðustu viku. Hún bauð vinum og vandamönnum til glæsilegrar veilsu á pallinum hjá sér á laugardagskvöldið og lofaði og stóð við það að öll tónlist yrði flutt af vinilplötum. Eitthvað fór nú tónlistin fram hjá mér, en ég sat inni [...]

Continue reading

Réttardagurinn

      Í gær var svokallaður Réttardagur í Freyjulundi. Aðalheiður Eysteinsdóttir er sannkallaður listamaður og býr til stórkostlegar þrívíðar myndir úr timburafgöngum af ýmsu tagi. Sýningin er sett upp í Reistarárrétt, sem er rétt við Freyjulund, sem áður hýsti félagsheimili en er nú heimili þeirra Aðalheiðar og Jóns Laxdals. Að þessu sinni lögðu Aðalheiði lið tvær konur, [...]

Continue reading

Litli tónlistarmaðurinn

Continue reading

Blessaður dagur

Á fimmtudaginn söfnuðum við kringum okkur nokkrum vinum og ættingjum til þess að hafa hjá okkur, þegar loksins kom að því, sem við höfum ætlað okkur lengi, að láta blessa húsið okkar. Sr. Óskar tók mjög vel í að sjá um athöfnina og Hlín var tilbúin að spila undir sálmasöng. Athöfnin var falleg og látlaus [...]

Continue reading

Margt líkt með skyldum

      Myndirnar sýna þau feðgin Ragnhildi Eddu og Ágúst Torfa þegar þau voru 8 mánaða. Ekki ósvipuð, ha?

Continue reading

Gleðilega þjóðhátíð

Lítið hefur farið fyrir hátíðlegheitum hjá okkur í dag. Þóra bauð okkur í kaffi og kleinur og var það hin ánægjulegasta stund að vanda.  Þaðan brugðum við okkur í Glerárkirkju þar sem Þórunn Ólafsdóttir tók á móti okkur, en hún hringdi fyrr um daginn til að biðja okkur að líta á sýninguna, en hún hafði [...]

Continue reading

Vatnslitamynd

Í gær fengum við tvær heimsóknir. Annars vegar litu þau Sturla og Inga inn, en þau dvelja á Dalvík þessa viku. Hins vegar birtist hér Guðmundur Ármann listmálari og færði Hauki vatnslitamynd með þakklæti fyrir þýðingu, sem hann vann fyrir Guðmund. Gaman að fá vatnslitamynd eftir hann en fyrir áttum við grafíkmynd og olíumálverk.

Continue reading

Vesper í Akureyrarkirkju

Á sunnudaginn voru tvennir tónleikar, sem mig langaði á, en valdi að hlusta á Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar flytja stórvirkið Vesper op 37 eftir rússneska tónskáldið Sergei Rachmaninoff. Það er ekki að orðlengja það að þetta voru stórkostlegir tónleikar. l Á eftir bauð Haukur okkur Hlín í mat á Kaffi Jónsson og var hann [...]

Continue reading

prev posts