Archive > May 2008

Litla Ljót í Hafnarfirði

Hafnarfjörður er 100 ára og af því tilefni setti Tónlistarskólinn í Hafnarfirði upp söngleikinn Litlu Ljót eftir Hauk minn (Ágústsson) í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Mér skilst sýningar hafi verið um tíu. Leikarar voru 8 og 9 ára börn úr forskólanum. Haukur var (aldrei þessu vant) beðinn um leyfi til sýningarinnar og jafnfram boðið á sýninguna. Við drifum okkur [...]

Continue reading

Þórunn Helgadóttir

Í kvöld ræddi Eva María við Þórunni dóttur Ragnheiðar vinkonu minnar. Ég var búin að heyra sögu hennar hjá Ragnheiði, en enn áhrifameira var að heyra Þórunni segja frá. Saga hennar er hreint ótrúleg. Ég lýsi aðdáun minni á þessari ungu konu, sem fékk köllun og fylgir henni.

Continue reading

Veður

Nú er það hitabylgja í maí. Alla næstu viku er gert ráð fyrir 20 stigum og  yfir, sól suma daga aðra ekki. Mér dettur í hug eitt vorið, þegar samstarfskonur mínar komu á sumarkjólum í partý á Gilsbakkaveginn eftir síðasta starfsdag og við sátum úti og neyttum veitinga. Daginn eftir snjóaði, nema hvað? Þetta er Ísland.

Continue reading

Kvennaskólapíur

Fyrir óralöngu var ég Kvennaskólapía. Þá var Kvennaskólinn í Reykjavík gagnfræðaskóli fyrir stúlkur. Þar var líka frænka mín, Inga Teits. Ég tók landspróf og fór í Menntó eins og einar fjórtán af skólasystrum mínum. Hinar urðu eftir og luku kvennaskólaprófi ári síðar. Það þótti nú ekkert hoj. Nú um helgina hittist sá hópur eins og þær hafa [...]

Continue reading

Forstofan, Idolið, Evróvision og Killer Joe

Þegar við höfðum búið í húsinu okkar um tíma kom í ljós galli í forstofunni, sem lýsti sér þannig að flísarnar brotnuðu og greinilegt var að það var holt  undir nokkrum þeirra. Lokalendingin var að rífa allar flísarnar burt og gera við. Við keyptum nýjar flísar í sama lit en stærri. Múrarinn ætlaði svo að [...]

Continue reading

Gömul kynni gleymast ei

Fyrir skömmu buðu tvær gamlar skólasystur til fagnaðar í sumarbústað á Suðurlandi. Önnur er búsett í Bandaríkjunum, en báðar eiga bústaði á svipuðum slóðum. Tilefnið var 45 ára stúdentsafmæli á þessu vori. Þetta boð varð ég að þiggja og fór að undirbúa mig með því að leita uppi myndir frá skólaárunum. Það er dálítið skemmtilegt [...]

Continue reading

Veður

Undanfarið  hef ég velt veðrinu fyrir mér. Hvað er gott veður? Margir, a.m.k. Íslendingar, virðast líta svo á að gott veður sé sólskin og hlýindi, helst um 25 stiga hiti og sækja þetta góða veður til útlandanna. Ég get alveg viðurkennt, að að vissu leyti var notalegt að þurfa ekki að hugsa um yfirhafnir á [...]

Continue reading

Annar dagur í hvítasunnu

Í gær langaði okkur í kirkju, en í báðum kirkjunum var verið að ferma. Við fórum því heim til að undirbúa fjölskyldumálsverð, sem tókst vel að vanda. Í dag var ekki að sjá að um neitt helgihald væri að ræða og í staðinn skruppum við til félaga okkar þeirra Péturs og Ragnheiðar. Pétur var búin [...]

Continue reading

Ömmudagur

Í dag er mæðradagurinn, en í gær var ömmudagur og þá birtist hér lítil snót, Ragnhildur Edda með þennan líka fallega rósavönd  handa ömmu sinni. Hún var vel klædd með ullarhúfu og vettlinga enda kalt úti. Hún fékk f yrsta bílinn frá ömmu í gær. Hún nagaði hann með ánægju, en á eftir að læra [...]

Continue reading

Innlit

Oft er sagt að fólk sé hætt að líta inn hjá vinum sínum og ættingjum. Það skil ég bara ekki. Hér líta margir inn og þá er ég ekki að tala um Ágúst Torfa, Evu Hlín, Ragnhildi Eddu eða Hlín, sem eru okkar nánasta fjölskylda. Í gær t.d. fengum við tvær góðar heimsóknir og vorum [...]

Continue reading

prev posts