Jón Ársæll dró upp mynd af Ólöfu Pétursdóttur í þætti sínum Sjálfstæðu fólki á sunnudagskvöld, en þá var liðin rétt rúm vika frá því Ólöf var jarðsungin. Þátturinn var svolítið hrár, en samt kom vel fram hvernig manneskja Ólöf var og hvað henni tókst að koma í verk eftir að hún slasaðist og þannig haft áhrif [...]
Archive > April 2008
Megrunarráð
Einhverra hluta vegna er ég farin að fá megrunarráð í tölvupósti. Ég er í raun ánægð með það, veitir víst ekki af. Eitt ráðið var að borða sig aldrei saddann, heldur hætta þegar maður er ekki lengur svangur. Seinna ráðið, sem ég ætla að deila með ykkur að þessu sinni fjallar um svefn. Ráðið hljóðar [...]
Kominn föstudagur
Á miðvikudagskvöld hélt Þórhallur Heimisson fyrirlestur í Glerárkirkju og fjallaði hann um ýmsa leyndardóma og leynireglur fornaldarinnar sem mjög hafa verið til umræðu að undanförnu. Boðið var upp á léttan kvöldverð á undan og í lokin var farið inn í kirkju þar sem höfð var stutt helgistund. Er ekki að orðlengja það, að þetta var [...]
Maturinn í gær
Í gær bauð Margrét okkur í grísalundir með sósu, hrísgrjónum og hrásalati. Hún steikti lundirnar á pönnu og setti þær svo inn í heitan ofn á meðan hún bjó til sósuna. Í sósunni var laukur, sveppir (mikið af hvoru), gráðaostur og döðlur. Nú ekki má gleyma að þetta er steikt upp úr smjöri og bætt [...]
Enn einn góður dagur
Í morgun fór ég á Bjarg. Ósk sjúkraþjálfari var með hópinn og var þetta mjög góður tími. Fjölbreyttur og reyndi á allan líkamann og hugann með. Ég lagði mig eftir hádegi og síðan fórum við til Margrétar í Árholti og horfðum á Macbeth. Þegar því var lokið var kominn þessi dýrindis máltíð á borðið. Við [...]
Sunnudagsveður
Í gærmorgun fór snemma að snjóa og snjóaði meira og minna allan daginn, einhver nefndi 20 sm jafnfallinn snjó. Í morgun skein svo sólin og breytti heimsmyndinni. Enn er allt hvítt, en allar götur auðar. Í gær fórum við í guðsþjónustu, sem helguð var Valdimari Briem, en hann var eins og þú veist afar mikilvirkur [...]