Archive > March 2008

Ingibjörg Ebba Jósafatsdóttir kvödd

Á laugardeginum fórum við svo vestur á Blönduós til að fylgja Ebbu vinkonu okkar til grafar. Á Öxnadalsheiðinni var skafrenningur svo varla sá milli stika og einmitt þegar við ókum þar  um voru einhverjir Reykvíkingar að tala um hvað þeir ætluðu að gera um helgina úr því vorið væri komið? Undarlegt að hlusta á þá [...]

Continue reading

Sálarstaldur

Sálarstaldur kalla menn hádegisstundina í Kirkjubæ á föstudögum. Þar er stutt samverustund og einhver fenginn til að segja nokkur orð.  Á þessum föstudegi var það Haukur minn og hann talaði um bænina í Faðirvorinu: “Verði þinn vilji”. Mæltist honum vel og urðu fjörugar umræður í lokin.

Continue reading

Nóg að gera

Það h efur verið nóg að gera undanfarið. Á páskadag fórum við í kirkju klukkan átta og var það hin ánægjulegasta stund.  Predikunin hjá Óskari og Eyþóri var góð og skemmtilegt að fylgjast með því hvernig þeir ófu saman talað orð og tónlist. Við fórum í morgunkaffið með kórsöng á eftir og var þar fjölmenni. Um [...]

Continue reading

Meiri hamingjuóskir

Á þriðjudaginn var eignuðust þau Elvar og Anna aðra dóttur. Fyrir eiga þau Aþenu Lind, sem er hálfsannarsárs. Við heimsóttum þær mæðgur í dag, en sú litla svaf  í dúðum, svo við sáum lítið til hennar. Til hamingju með litlu systur, Aþena Lind. Til hamingju Anna og Elvar.

Continue reading

Til hamingju með daginn

Ragnhildur Edda er sex mánaða í dag. Falleg, ljúf og yndisleg lítil stúlka. Til hamingju með daginn. Mamma hennar bakaði eina af sínum frábæru súkkulaðikökum í tilefni dagsins. Önnur myndin er tekin þegar Ragnhildur kom í páskamatinn með stórfjölskyldunni og hin var tekin í kvöld.    

Continue reading

Að fara í kirkju

Eins og þú hefur eflaust tekið eftir förum við hjónakornin oft í kirkju. Nú kemur fyrir að okkur langar til að kanna hvað er í boði á svæðinu. Það er ekki vegna þess við séum ekki ánægð í okkar kirkju, en tilbreytingin getur stundum verið góð. En þá vandast málið. Við höfum í höndum safnaðarblað [...]

Continue reading

Nýtt RL Magasín og bókamarkaðurinn

Seinni partinn í dag fórum við Haukur í smáskoðunarferð. Ferðin hófst í hinum nýja Rúmfatalager. Aðstaðan hefur batnað mikið, en ekki er þetta aðlaðandi verslun. Þá lá leiðin á bókamarkaðinn og þar greip ég í feitt. Fyrir 400 krónur fékk ég hljóðbókina Gestaboð Babette, sem er næsta viðfangsefni leshósins. Kristbjörg Kjeld les og tekur lesturinn 2 tíma. [...]

Continue reading

Föstudagurinn langi

Kristinn Ólason Skálholtsrektur hélt fyrirlestur í Glerárkirkju um baráttu góða og ills í tilefni dagsins. Hann hélt einnig fimmtudagsfyrirlesturinn, en vegna klaufaskapar misstum við af honum. Gestum var fyrst boðið til kirkju þar sem Helena Bjarnadóttir og Valmar fluttu nokkur lög. Þá var  haldið í safnaðarheimilið og hlýtt á fyrirlesturinn. Boðið var upp á kaffi og [...]

Continue reading

Helgihald á skírdag

Á skírdag var að vanda kyrrðarstund í hádeginu, en aldrei þessu vant engin súpa á eftir og því engin samvera.  Á svona dögum gerir maður sér grein fyrir því hvað slíkar stundir eru mikilvægar. Önnur kyrrðarstund var svo klukkan átta. Þá mættu 17 manns og því var tekið það ráð að raða stólum upp í [...]

Continue reading

Veturinn kominn aftur

Það er ekki lengi verið að skipta u m veður. Loksins þegar snjórinn var horfinn að mestu, fór að snjóa. Spáin var reyndar um arfavitlaust veður, sem ekki hefur gengið eftir, a.m.k ekki hér á Akureyri, en eitthvað mun fólk hafa lent í vandræðum á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Hlín og Atli komu áðan og voru [...]

Continue reading

prev posts