Archive > February 2008

Tapað fundið

Það er rétt að láta þess getið, að ég er búin að finna eiganda skónna og verða þeir sóttir í næstu viku. Mikið varð ég fegin.

Continue reading

Enn eitt afmælið í Reykjavík

Nú erum við komin suður – í þetta skipti er erindið það sama og í tvö síðustu skipti, afmæli. Nú er það Guðmundur Norðdal, sem er að verða áttræður (ótrúlegt) þó hann hafi bara átt tuttugu afmælisdaga um æfina. Í boðsbréfinu er manni bent á að koma tímanlega þar sem skipulögð dagskrá hefjist stundvíslega. Við [...]

Continue reading

Skrafl og Krybba

Þessi spil eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Svanhildur lærði krybbuna í Kanada fyrir nokkrum árum og keypti  þá pinnabretti, sem nauðsynleg eru. Við vinnum svona til skiptis, en líklega hefur Svanhildur þó unnið oftar – ekki þó í gær. Ég er aftur á móti sterkari í skraflinu, þó tvísýnt hafi verið, en það munaði [...]

Continue reading

Skór í óskilum

Gestir, sem hingað koma hafa skilið eftir sit lítið að hvoru, trefla, gleraugu og nú síðast skó. Þegar konudagsgestirnir voru farnir fundust sérlega fallegir skór í poka í forstofunni. Ég hef ekki hugmynd um það hver á þá, en vona að það fari ekki fyrir þeim eins og gleraugunum, sem enn bíða eigenda sinna eftir [...]

Continue reading

Konudagur og konudagsboð

Í dag hélt ég í þriðja sinn konudagsboð. Ég bauð rúmlega 40 konur og lét fjöldann ráðast af stólum heimilisins og 8 eldhússtólum úr Fannagili. Ég var með miklu fleiri konur á skrá og þótti erfitt að geta ekki boðið fleirum. Helga Lyng kom í gærkvöldi og hjálpaði mér að raða upp í stofunni og [...]

Continue reading

Síðasta vika í þorra

Vikan hefur verið heldur róleg. Ég þurfti að hringja í margar konur og bjóða þeim til konudagshófs. Veðrið hefur verið meinlaust og færð eins og á sumardegi. Við vorum boðin til vígslu tamningastöðvar og reiðhallar í Torfunesi: Við fengum ekki skilaboð um breytingu á tíma og mættum því tveim tímum of snemma. Þegar til kom [...]

Continue reading

Nafnlaus

Fyrir skömmu fór ég til læknis og hafði með mér ýmsa pappíra í plastumslagi. Þegar ég fór út úr bílnum tók ég óvart í vitlausan enda á umslaginu og nokkur blöð fuku. Ég hélt ég hefði náð þeim öllum, en svo kom í ljós að einn lyfseðill hafði komist undan. Ég varð miður mín, þar [...]

Continue reading

Castro hættur

Castro er hættur og að sögn er ætlunin að hleypa þeim sem yngri eru að. Maður brosir nú út í annað þegar fréttinni fylgir að Raol bróðir hans muni taka við en hann er 76 ára. Þegar við vorum á Kúbu um árið sögðu Kúbverjar, að ýmislegt myndi breytast, þegar Castro væri allur, héldu hann [...]

Continue reading

Hápunktur mánudags

Hápunktur mánudagsins var heimsókn til fótaaðgerðafræðings. Það varð til þess að það rifjaðist upp fyrir mér það sem ég frétti fyrir skömmu um menntun fótaaðgerðafræðinga. Þeir hafa hingað til stundað stíft nám í 3 ár og um starf þeirra hafa gilt ákveðnar reglur. Nú hefur hæstvirtur menntamálaráðherra (ja, svei) leyft snyrtiskólanum Snyrti-akademiunni að hefja kennslu í faginu [...]

Continue reading

Fjögurra og hálfsmánaðargömul hnáta

Þarf ég nokkuð að segja?

Continue reading

prev posts