Vinur okkar Ólafur Óskar Óskarsson, betur þekktur sem Óli á Bjargi, varð fimmtugur í vikunni sem leið. Af því tilefni var haldin stórveisla á Bjargi og komu um 200 manns. Þetta var fyrirmyndarveisla með dýrðlegum veitingum og skemmtiatriðin voru ekkert hoj. Addi Sím birtist í boði Morgunhana og sló í gegn að vanda. Snorri Guðvarðar [...]
Archive > January 2008
Á föstudegi
Já, það er kominn föstudagur. Dagarnir hafa verið ljúfir. Á þriðjudag fór ég í heimsókn í ungbarnasundið í Akureyrarlaug og horfði á hvernig foreldrar og börn skemmtu sér í lauginni. Það var sungið og buslað. Ragnhildur var tvímælalaust hárprúðust, en pabbi hennar næst hárminnstur pabbanna. Hún virtist hin ánægðasta, nema þegar henni var stungið á [...]
Lok suðurferðar
Ég er löngu komin heim, en hef ekki staðið mig í skrifunum. Sunnudagurinn var hinn fegursti. Ég var hjá Katrínu og Stefáni fram eftir degi, en um þrjúleytið sótti Ragnheiður vinkona mig. Þau eru nýflutt í íbúð í Kríuhólum, sem þau keyptu af Aðalbjjörgu og Rögnvaldi, sem við hittum á Harðbak í sumar. Þau hafa [...]
Heimsóknir og gamlir vinir
Dagurinn í dag var hreint frábær. Til að byrja með sótti Auðbjörg mig og saman fórum við til Jónu. Það, sem tengir okkur þrjár er að við kenndum saman við Öskjuhlíðarskóla fyrir rúmum 30 ár og höfum haldið sambandi alla tíð síðan, þó meira við Jóna. Guðrún Þórarins og Sigríður Páls komu líka og urðu [...]
Ragnhildur Edda
Það er sérkennilegt hve þessi litlu börn geta átt hug manns allan. Í hvert skipti, sem ég sé litið barn fer ég að velta því fyrir mér, hvernig hún verði á þeim aldri, sem barnið er. Það er til margs að hlakka, þegar litlu barni er fylgt eftir þroskabrautinni. Hér eru tvær myndir, sem ég tók áður [...]
Stórafmæli
Aðalerindið suður var að hitta Sigrúnu vinkona mína á afmælisdegi hennar. Hún hélt vinkonuboð í hádeginu og voru veitingar hinar glæsilegustu. Það vor gestirnir líka, svo ekki sé minnst á afmælisbarnið. Sjáið þið bara. Þær eru heldur ekkert hoj hinar “konurnar” í fjölskyldunni.
Snjór í Reykjavík
Þá er ég komin suður til Reykjavíkur. Ástæðan er einföld. Sigrún vinkona mín er að verða sjötug á morgun og býður til konuboðs af því tilefni. Mér fannst það ekki spurning að drífa sig suður til að gleðjast með henni. Ég ætla að sjálfsögðu að nota tækifærið og hitta fleira gott fólk og byrjaði með [...]
Ragnhildur sundkona
Jæja, nú er Ragnhildur Edda búin að fara í fyrsta sundtímann í ungbarnasundinu og var mjög ánægð í vatninu. Ég bíð nú spennt eftir myndum og svo því hvort amma fær að koma í heimsókn í sundið og f ylgjast með. Það væri sannarlega gaman.
Frábær þjónusta
Öllum lyfjum geta fylgt einhverjar aukaverkanir. Bjúgur á fótum getur fylgt einu lyfinu, sem ég tek. Ekkert virðist vinna á honum og ég get varla komist í nokkra skó. Því varð það úr, að ég fór í skóbúðina við Ráðhústorg í gær til að kaupa skó. Þar fékk ég frábæra þjónustu. Ég útlistaði vandamálið fyrir [...]
Stórafmæli
Nei, ekki í fjölskyldunni heldur í vinahópnum, þ.e. vinkvennahópnum mínum. Það hefur það í för með sér að ég fer tvisvar suður með stuttu millibili. Fyrra skiptið nú á fimmtudaginn og verð fyrir sunnan fram á mánudagskvöld og seinna skiptið um næstu mánaðamót. Það er óvenjulegt fyrir mig að fara tvisvar sem næst í sama [...]
