Archive > December 2007

Jólaboð

Mikið hefur verið um jólaboð þessa dagana, bæði hádegis- og kvöldverðarboð, jafnvel kaffiboð. Við höfum fengið gesti og farið í boð. Í boðið var konuboð, þar sem aldurinn var frá 3 mánaða til 64 ára, ömmur, mömmur og dætur. Verulega vel heppnað boð. Þóra með Ragnhildi Eddu. Við höfum fengið gesti, m.a. í dag, þegar [...]

Continue reading

Aftansöngur og aðrar kirkjuferðir

Að vanda fórum við í kirkju á aðfangadag klukkan sex og hlýddum á   aftansöng. Prestur var sr. Óskar H. Óskarsson. Hann er afar öruggur, tónar fallega og er alveg fumlaus. Hann hefur fitjað upp á ýmsum nýjungum og að þessu sinni nýtti hann bæði orgel og kór í predikuninni með mjög góðum árangri. Kirkjan var [...]

Continue reading

Jólabækurnar

Það tilheyrir jólunum að lesa bækur, helst nýjar svokallaðar jólabækur. Nú hefur myndir breyst mikið og bækur koma út allan ársins hring. Hrifnust er ég af því að nú skuli bækur gefnar út sem kiljur, verst að það þarf yfirleitt að bíða eftir þeim í nokkra mánuði eftir að harðspjaldabækurnar koma út. Ég skil ekki [...]

Continue reading

Milli jóla og nýjárs

Jólin standa fram á þrettándann. Þannig hefur það alltaf verið í mínum huga og samt segjum við milli jóla og nýjárs. Mér finnst það í lagi, en ekki, þegar talað er um gleðilega rest – það þykir mér með eindæmum leiðinlegt. En nú er þriðji dagur jóla og jólin í ár eru hvít. Við vorum [...]

Continue reading

Continue reading

Aðfangadagur

Klukkan er að verða níu að morgni aðfangadags. Ég sit hér í ruslakompunni minni og á það eitt eftir að taka svolíltið til í henni. Jólatréð löngu skreytt, búin að strauja dúka og sængurföt, baka og pakka. Í gær skruppum við í sveitina og heimsóttum fólk auk þess sem við skruppum í búðir til að [...]

Continue reading

Bráðum koma

Já, það hefur verið nóg að gera við jólaundirbúninginn, skrifa jólakveðjur og koma þeim í póst, sem er ekki eins mikið mál og var áður, þegar sleikja þurfti á annað hundrað frímerki og jafnvel umslögin líka. Nú er allt orðið meira og minna sjálflímandi. Ég þurfti þó á pósthús til að kaupa frímerki á þau [...]

Continue reading

Meðlæti um jólin?

Þegar ég sá þessa fyrirsögn í Gestgjafanum datt mér í hug hvað það getur skipt miklu hvort skrifað er eitt orð eða tvö. Það þýðir dálítið annað að segja “með læti um jólin”. Á sama hátt er t.d. skilti, sem fara, Guði sé lof, fækkandi, sem á stendur “Einbreið brú”. Setningin hefur heldur betur skipt [...]

Continue reading

Aðventukvöld á Dalvík

Ég skammast mín heil ósköp fyrir það að hafa ekki skrifað um einn af hápunktum aðventunnar, en það er þegar við förum nokkrar konur saman á aðventukvöld á Dalvík. Að þessu sinni var það síðasta sunnudagskvöld. Við fyllum heilan bekk í kirkjunni og njótum okkar í botn. Ein okkar býr í Reykjavík og lætur sig [...]

Continue reading

Valinn besti matreiðslumaðurinn á Grand Bahama

Veröld/Fólk | mbl.is | 14.12.2007 | 15:18 Matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völundarson var í gær valinn besti matreiðslumaður eyjunnar Grand Bahama, sem er ein stærsta eyjan í Bahama-eyjaklasanum auk þess sem veitingastaður hans, Sabor, var valinn besti veitingastaður eyjunnar. Segir í tilkynningu að verðlaunin séu mikill heiður fyrir Völund og ekki síst fyrir veitingastaðinn Sabor sem [...]

Continue reading

prev posts