Í sumar leið ætluðum við Hlín að fara með beinu flugi frá Akureyri til Danmerkur, en en vegna ófyrirsjánlegra ástæðna varð ekkert úr þeirri ferð. Henni var síðan frekstað þar til nú. Við ákváðum að nota þessa ferð til að ferðast um Jótland, en það höfðum við ekki gert fyrr. Ferðin hófum við á fimmtudegi [...]
Archive > November 2007
Skírn Ragnhildar Eddu
Í gær var sonardóttir mín, Ragnhildur Edda Ágústsdóttir, skírð í Kópavogskirkju. Haukur afi sá um athöfnina, Hlín sat við orgelið og Atli sonur hennar spilaði með henni útgöngulagið. Þarna var saman komið það fólk, sem að Ragnhildi stendur og það er hreint ekki svo lítill hópur. Fjölskyldan okkar megin var öll mætt, nema Stefán Halldór, sem [...]
Húrra, komin í samband
Já, loksins er ég komin í samband. Það þýðir því miður ekki að ég komi öllu í lag í dag, en vonandi gerist eitthvað á hverjum degi a.m.k. næstu daga.
Bið
Kæri lesandi. Því miður verður bið á því að ég komi vefnum að tarna í lag og biðst innilega afsökunar á því. Málið er að Ragnhildur Edda verður skírð um helgina og ég er að vinna við skírnargjöfina og ýmislegt annað smávegis og bara ræð ekki við meira eins og er. En ég skal reyna [...]
Laugardagsfjör
Þó dagbókin min sé nú læsilegri en fyrr en hún ekki komin í fullan gang, en það vorum við konurnar í rússneska leshópnum, sem hittumst á fjórða tímanum á laugardaginn. Kristín Har var á stórum bíl og gat tekið okkur sjö (tvær komust ekki). Við enduðum á því að sækja Hrefnu, en það sem tilstóð [...]
Tæknin
Kristín Har þurfti að ná í mig í dag. Hélt það væri einfaldast með tölvupósti, en þá er eitthvað að móttökunni hjá mér, þannig að ég fæ ekki póst, þó ég virðist geta sent hann. Þá reyndi hún gemsann minn, sem lá dauður og óhlaðinn í úlpuvasa mínum (er kominn i hleðslu!). Þá var það [...]
Hátíð í bæ
Vikan hefur verið notaleg. Ég spilaði skrafl við Svanhildi á fimmtudaginn og í dag byrjaði hátíðahelgi. Hún hófst með afmælisveislu vígslubiskupsfrúarinnar á Hólum, sem haldin var í Ketilhúsinu. Þar var margt gesta, m.a. Jóa og Fúsi, en Jóa er náskyld Margréti. Rósa systir hennar var þó fjarri góðu gamni. Aðaláhuga veislugesta vakti þó yngsti gesturinn, [...]
Vísnabókin
Það mun hafa verið árið 1946, þegar ég var þriggja ára, þegar Vísnabókin kom út í fyrsta sinn. Seinna var hún endurútgefin aftur og aftur og aftur með ýmsum breytingum. Í fyrra kom hún svo út eina ferðina enn en að þessu sinni í sinni upprunalegu mynd. Þannig hef ég nú keypt hana handa Ragnhildi [...]
Parkinsonsamtökin
Stefán og Katrín komu norður á föstudaginn og sögðu sumarfæri alla leiðina nema rétt brekkuna okkar, sem var hvít og hál. Erindi þeirra norður var að fagna sjötugsafmælinu með Hauki. Við höfðum ætlað okkur að vera að heiman og sagt öllum það, en svo ákváðum við að vera heima og vera saman fjölskyldan, sem er [...]
Fjölskylduhelgi
Stefán og Katrín komu norður á föstudaginn og sögðu sumarfæri alla leiðina nema rétt brekkuna okkar, sem var hvít og hál. Erindi þeirra norður var að fagna sjötugsafmælinu með Hauki. Við höfðum ætlað okkur að vera að heiman og sagt öllum það, en svo ákváðum við að vera heima og vera saman fjölskyldan, sem er [...]