Magnús bróðir minn er í heimsókn með fjölskylduna. Þau komu í gær og svo mætti Ágúst Torfi með fjölskylduna og við höfðum myndarlega fjölskyldumáltíð. Svo drógu sunnanmenn stóra böggla upp úr pússi sínu og tók ég nokkrar myndir, þegar verið var að opna pakkana.
Author Archive > admin
Slóðaskapur
Hann pabbi minn spurði mig í dag, hvor ég væri hætt við dagbókina og ég viðurkenni að mér brá þegar ég sá hvað langt var um liðið. Margt hefur á dagana drifiið, en ég ætla að sleppa því og setja bara inn nokkrar myndir, enda veit ég að það er það, sem hann hefur mest [...]
Loksins nýjar myndir
Gleðilega hvítasunnuhátíð. Það hefur með réttu verið kvarað yfir því við mig hvað ég sinni ykkur lítið. Nú ætla ég að bæta smávegis úr því og sýna ykkur nokkrar myndir sem ég tók í gær. Í morgun fórum við í Glerárkirkju vegna þess að í Akureyrarkirkju var verið að ferma. Ekki var fjöldanum fyrir að [...]
Minningargreinar
Þegar ég var að lesa morgunblaðið í dag sá ég að á einni síðunni var skrifað um tvær konur, sem báðar voru fæddar í Vopnafirði. Það eru Ruth Kristjánsdóttir f. 1930 á Torfastöðum, Guðrún Þórðardóttir f. 1928 á Ljósalandi og loks Þorbjörg Valdimarsdóttir f. 1928 í Teigi. Ég verð að gefa mér tíma til að [...]
Á miðvikudaginn var var boð í Tröllaborgum fyrir afa og ömmur. Við mættum að sjálfsögðu. Sjá myndir http://picasaweb.google.com/laekur123/OmmuOgAfakaffi100310#
Hymnodia í Ketilhúsinu
Í hadeginu í gær brugðum við hjónakornin á tónleika í Ketilhúsinu. Það var Hymnódían og svo þau Lára fiðluleikari, sem skemmtu okkur í um klukkutíma og buðu einnig upp á súpu.. Ekkert var klappað fyrr en í lokin og lögin tengd með spuna. Skemmtilegt. i
Amma datt á augað
sagði Ragnhildur þegar ég rak tana í misfellu og hentist í jörðina. Ágúst Torfi greip mig og ók í flýti upp á slysó. Þar var vel tekið á móti mér og ég skoðuð og mynduð í bak og fyrir. Ég reyndist blá og marin í andliti og með sprungur tvær í vinstri hendi og upp [...]
Komnar heim
Fyrir viku brugðu þær mæðgur Bryndís og Eva sér til Svíþjóðar að heimsækja skyldmenni og ekki síst nýjustu viðbótina, dreng, sem Kristján og Brynja eignuðust í janúar. Ég hitti þær mæðgur í gær, og er ekki laust við að breyting hafi orðið á Bryndísi. Hún er farin að standa upp og standa kyrr. Ekki náði [...]
Venjulegur mánudagur
Í gær var mánudagur og nóg í boði. Við systur fórum á málstofu um kreppuræfilinn hjá Akureyrarstofu. Ég fór sérstaklega til að hlustaa á Sigrúnu Davíðsdóttur, sem ég held mikið upp á. Málstofan var vel sótt og skemmtileg, þrátt fyrir umræðuefnið. Þá fórum við í bíó og sáum mynd, sem verið er að sýna á [...]
